Góđæriđ er komiđ aftur og 2018 mun slá öll met. Núna er tíminn til ađ njóta lífsins takmarkalaust! Skál í botn!
Baráttan við lánið #13

Góđæriđ er komiđ aftur og 2018 mun slá öll met. Núna er tíminn til ađ njóta lífsins takmarkalaust! Skál í botn!
Yfir helmingur barna gat ekki beðið í 15 mín eftir öðrum sykurpúða. Fullorðnir eiga við svipað vandamál að stríða.
Eftirstöðvar: 6,9 milljónir Enn einu sinni styttist í kosningar. Loforð eru gefin og mótframboð eru gagnrýnd. Englar í skítkasti. Skattar eru alltaf eitt stærsta hitamálið fyrir kosningar. Hvað eiga skattar að vera háir? Hvernig á að dreifa þeim? Hvernig á að nýta skattana? Vinnandi fólk borgar stóran hluta tekna sinna í skatta. Sumir hugsa með…
Eftirstöðvar: 7,0 milljónir Margir Íslendingar virðast halda að mjög stór og þægilegur bíll sé lífsnauðsyn á Íslandi. Þetta er jú Ísland, land víkinganna! Ef þú ætlar að lifa af verður þú að eiga fjórhjóladrifið jeppaskrýmsli, svona ef þú skyldir festast uppi á jökli á leiðinni í Bónus. Jeppinn verður að hafa nóg geymslupláss fyrir bónuspokana…
Eftirstöðvar: 7,3 milljónir Tekjublað Frjálsrar Verslunar vekur alltaf mikla athygli á hverju ári. Íslendingar eru mjög áhugasamir um tekjur annarra og þykir mjög flott að fá góð laun, sem fyrir marga er eins konar stöðutákn. Fjölmargir Íslendingar hljóta að vera á mjög grænni grein með yfir milljón í tekjur á mánuði. Eða hvað? Margir með…
Eftirstöðvar: 7,5 milljónir Ég fór í Costco um daginn með það markmið að gera góð kaup og spara pening. Mér finnst margir gera sér ferð í Costco án þess að hafa hugmynd um hvað þeir ætla að kaupa eða hvort það er ódýrara en í öðrum verslunum. Ég ákvað að kaupa nokkrar vörur sem geymast gott…
Eftirstöðvar: 7,6 milljónir Ég er að lesa ágæta bók sem hefur fengið mig til að hugsa ,,hvað við þurfum mikinn lúxus í líf okkar til að lifa hamingjusömu lífi?" Bókin heitir Endurance: Shackleton's Incredible Voyage og fjallar um leiðangur skipstjórans Ernest Shackleton á Suðurpólinn fyrir um það bil 100 árum síðan. Í stuttu máli sagt…
Eftirstöðvar: 7,8 milljónir Eitt að því erfiðasta sem við gerum sem menn er að berjast við langanir okkar. Mannsheilinn er órökréttur og kallar í sífellu á einhverskonar sæluvímu. Það er stundum erfitt að spara peninga þegar heilann langar í ferðalag til útlanda, nýjan síma eða fallegri bíl. Og það getur jafnvel verið erfiðara að ausa…
Eftirstöðvar: 8,0 milljónir Ég er nýlega byrjaður að gera tilraun með að draga úr kortanotkun og nota reiðufé í staðinn. Það eru gildar ástæður fyrir því. Í fyrsta lagi er kostnaður. Hver greiðsla með debetkortinu kostar 17kr. Slíkur kostnaður getur verið fljótur að safnast saman í stóra upphæð. Gerum ráð fyrir að debetkortið sé ekki…
Eftirstöðvar: 8,1 milljón ,,Borgaðu sjálfum þér fyrst". Þetta heyrist oft þegar talað er um sparnað, enda mjög gott ráð. Tilhneyging mannsins er nefnilega sú að grípa hvert tækifæri og njóta oft og vel. Þetta kom sér vel fyrir mörg þúsund árum þegar við flökkuðum um slétturnar og matur var af skornum skammti. Þá gat hvert…